14.11.1977
Efri deild: 14. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 616 í B-deild Alþingistíðinda. (436)

75. mál, launaskattur

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er gamalkunnugt og með flutningi þess nú lagt til að enn einu sinni verði framlenging á þeim hluta launaskatts sem hér um ræðir, en ástæða álagningarinnar kemur fram í aths. við frv. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um það, það er hv. þdm. kunnugt, en leyfi mér að leggja til að að lokinni þessari umr. verði því vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.