15.11.1977
Sameinað þing: 17. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 644 í B-deild Alþingistíðinda. (454)
50. mál, framkvæmd laga um Framleiðslueftirlit sjávarafurða
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Svar við fyrri lið fsp.:
Ógerningur er að svara fyrri lið fsp. af nákvæmni. Líta má þó á aflatölur á sama tíma á s.l. ári og í sept. s.l. og reyna þannig að gera sér grein fyrir um hve mikið aflamagn er að ræða þennan hálfa mánuð er verkfallið stóð.
Ef togaraaflinn er fyrst tekinn, þá var í okt. 1976 landað 12 270 lestum af bolfiski innanlands og 660 lestum erlendis. Í sept. s.l. var landað úr togurum 15 792 lestum innanlands af bolfiski og 938 lestum erlendis. Séu þessar tölur helmingaðar, þar sem verkfallið stóð í hálfan mánuð, og síðan tekið meðaltal af okt. 1976 og sept. 1977, þá verður útkoman 7 015 lestir innanlands og 400 lestir erlendis. Bolfiskafli báta í okt. 1976 var 8561 lest innanlands, og er þá spærlingur ekki meðtalinn, og landað var 1041 lest erlendis. Í sept. 1977 landa bátar 9566 lestum af bolfiski innanlands og 135 lestum erlendis. Sé svo helmingað og tekið meðaltal verða tölurnar þær, að 4531 lest er landað innanlands af bátum og 294 lestum erlendis. Þessar tölur ættu að geta gefið nokkuð nákvæma vísbendingu um það aflamagn er fyrirspyrjandi óskar upplýsinga um. Hins vegar fara nú að liggja fyrir tölur fyrir októbermánuð, en ekki fyrir þennan hálfa mánuð út af fyrir sig, heldur mánuðinn í heild.
Varðandi 2. lið fsp. skal þetta upplýst:
Öll frystihús og síldarsöltunarstöðvar hafa í þjónustu sinni fiskmatsmenn, samþykkta af Framleiðslueftirlitinu, sem eru ábyrgir fyrir framleiðslunni gagnvart stofnuninni. Verkfallið náði ekki til þessara matsmanna. Þar sem yfirmatsmenn Framleiðslueftirlitsins fylgjast með störfum þessara matsmanna, en á verkfallstímanum störfuðu yfirmatsmennirnir ekki, þá gat stofnunin ekki veitt alveg sama aðhald og venja er til. Hitt er þó staðreynd, að matsmenn frystihúsa meta hráefnið með tillit til þeirra gæðakrafna sem gerðar eru til hinna einstöku framleiðslutegunda.
Eins og áður greinir störfuðu matsmenn á síldarsöltunarstöðvum í verkfallinu. Síldarmatsmenn Framleiðslueftirlitsins fylgjast með störfum þeirra meðan söltun og verkun fer fram, en þetta eftirlit féll einnig niður í verkfallinu. Hins vegar er það venja, að öll saltsíld er skoðuð og tekin út af síldarmatsmönnum Framleiðslueftirlitsins áður en hún er flutt úr landi og verður engin breyting þar á.
Framleiðendur saltfisks og skreiðar verða að hafa vinnsluleyfi, eins og tíðkast í öðrum greinum fiskvinnslu, til staðfestingar á því að fiskvinnslustöðin fullnægi kröfum um hreinlæti og búnað. Hins vegar eru ekki gerðar kröfur um að fiskmatsmaður starfi við framleiðsluna. Þegar afurðir þessar eru fullverkaðar og hæfar til útflutnings eru þær metnar í gæðaflokka þannig að hver fiskur er skoðaður. Mat þetta annast sérstakir matsmenn sem samþykktir eru af Framleiðslueftirlitinu, en þeir störfuðu í verkfallinu. Þótt yfirmatsmenn, er eftirlit hafa með störfum þessara matsmanna, legðu niður störf var fremur lítið um að vera í saltfisksmati um þessar mundir og er áætlað að næsti farmur verði fluttur úr landi seinni hluta þessa mánaðar. Yfirmatsmenn munu framkvæma yfirmat á öllum saltfiski, sem tilheyrir landinu, áður en útflutningur fer fram. Meginhluti þeirrar skreiðar sem flutt er út er metin á haustin, en vegna markaðsaðstæðna í Nígeríu er mun minna um að vera í skreiðarmati nú en venja er til á þessum árstíma.
Þótt orðalag fyrirspurnanna sé óljóst er rétt að skýra frá því, að við eðlilegar aðstæður er allur ferskur fiskur metinn af starfsmönnum Framleiðslueftirlitsins og gefa þeir fyrirmæli um vinnslumöguleika á hráefninu. Verkfall BSRB náði til þeirra ferskfiskmatsmanna, er þáðu 50% laun eða meira, og var þar um að ræða 37 af 56 starfandi ferskfisksmatsmönnum, en hjá þeim 19 ferskfisksmatsmönnum, er ekki tóku þátt í verkfallinu, fór ferskfisksmat fram með eðlilegum hætti. Á þeim stöðum, þar sem þessir matsmenn voru í verkfalli, var ekki um opinbert ferskfisksmat að ræða.