21.11.1977
Neðri deild: 16. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í B-deild Alþingistíðinda. (518)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 21, nóv. 1977.

Þar sem Svava Jakobsdóttir, 5. landsk. þm., dvelst nú erlendis í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur leyfi ég mér samkv. beiðni hennar og með skírskotun til 138, gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþb., Kjartan Ólafsson ritstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru hennar.

Lúðvík Jósepsson,

formaður þingflokks Alþb.“

Kjartan Ólafsson hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili, og ég býð hann velkominn til starfa í deildinni.