28.11.1977
Efri deild: 18. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 853 í B-deild Alþingistíðinda. (587)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 25. nóv. 1977.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér, með skírskotun til 738. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Sverrir Bergmann læknir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

10. þm. Reykv., Einar Ágústsson.“

Sverrir Bergmann hefur átt sæti á Alþingi fyrr og býð ég hann velkominn til starfa á ný.