15.12.1977
Neðri deild: 31. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1322 í B-deild Alþingistíðinda. (920)

75. mál, launaskattur

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Virðulegi forseti. Frv. það, sem hér er til umr., hefur áður sést í sölum Alþ. og því hv. þm. kunnugt. Er lagt til að sá launaskattur, sem á hefur verið lagður og skiptist þannig, að 2% renna í byggingarsjóð og 11/2% í ríkissjóð, verði lögfestur á ný, en lögin renna út nú 31. des.

Ég leyfi mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 3. umr. og hv. fjh.- og viðskn.