16.12.1977
Efri deild: 30. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1360 í B-deild Alþingistíðinda. (966)
90. mál, iðjuþjálfun
Frsm. (Oddur Ólafsson):
Herra forseti. Heilbr.og trn. Ed. hefur haft til umfjöllunar frv. til l. um iðjuþjálfun. Iðjuþjálfun er frekar ný starfsgrein hér á landi. Iðjuþjálfarar hafa unnið hér í nokkur ár við tiltölulega fáar stofnanir. En starf þeirra er mikilvægt og vex að umfangi, einkum nú hin síðari árin, þar eð það hefur komið í ljós, að það getur verið mörgum sjúklingum mikil nauðsyn að fá hæfa og lærða aðila til þess að kenna sér að vinna og til þess einnig að endurhæfa sig á ýmsan hátt með vinnuþjálfun.
Það er tilgangur iðjuþjálfara að starfa við endurhæfingu sjúkra og heilbrigðra sem fólgin er í þjálfun, fræðslu og kennslu. Getur það ekki síst átt við kennslu í því að vinna, starfa og nota þau störf sem lið í lækningu sjúkra.
N. fór rækilega yfir frv. og sér ekki neina annmarka á því og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.