Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 349, 111. löggjafarþing 135. mál: skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Lög nr. 100 29. desember 1988.

Lög um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði.


1. gr.

     Eigendur fasteigna, sem nýttar eru við verslunarrekstur eða til skrifstofuhalds, skulu á árinu 1989 greiða sérstakan eignarskatt til ríkissjóðs.

2. gr.

     Skattskylda hvílir á aðilum sem skattskyldir eru samkvæmt ákvæðum I. kafla laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, auk þess bönkum og sparisjóðum og innlánsstofnunum.

3. gr.

     Stofn til sérstaks eignarskatts skal vera fasteignamatsverð í árslok 1988 á fasteign sem nýtt er við verslunarrekstur eða til skrifstofuhalds, ásamt tilheyrandi lóð, enda þótt um leigulóð sé að ræða, þó að frádregnu afgjaldskvaðarverðmæti leigulóðar sem skal telja sem stofn hjá eiganda hennar.
     Ef fasteignamatsverð er ekki fyrir hendi skal miða við kostnaðar- eða kaupverð eignar eða áætlað fasteignamatsverð.

4. gr.

     Við ákvörðun á því hvaða eignir myndi stofn til sérstaks eignarskatts skal miða við raunverulega notkun fasteignanna í árslok 1988.
     Sé sama eignin notuð við verslunarrekstur eða til skrifstofuhalds, en einnig til annars, skal við ákvörðun á skattstofni skipta verðmæti eignarinnar hlutfallslega.

5. gr.

     Með skattframtali 1989 skal fylgja skrá yfir eignir sem falla undir lög þessi ásamt upplýsingum um heildarfasteignamatsverð þeirra eða eftir atvikum kostnaðarverð í árslok 1988. Enn fremur skal skrá þar upplýsingar um notkun þeirra svo og upplýsingar um rúmmál eigna sem um er getið í 2. mgr. 4. gr.
     Aðilar, sem skattskyldir eru skv. 2. gr. laga þessara en undanþegnir eru tekjuskatts- og eignarskattsskyldu, skulu fyrir 31. maí 1989 skila skrám skv. 1. mgr. til skattstjóra í því umdæmi þar sem þeir eiga lögheimili.

6. gr.

     Sérstakur eignarskattur skal nema 2,2% af skattstofni skv. 3. gr. Skattinn skal leggja á í heilum tugum króna þannig að lægri fjárhæð en 10 kr. sé sleppt.
     Sérstakan eignarskatt, sem ekki nær 4000 kr., skal fella niður við álagningu.

7. gr.

     Ákvæði VIII.– XIV. kafla laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, skulu gilda um álagningu og innheimtu sérstaks eignarskatts eftir því sem við á nema öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum.

8. gr.

     Skatt samkvæmt lögum þessum má draga frá tekjum rekstrarársins 1988 sem rekstrarútgjöld við álagningu tekjuskatts og útsvars á árinu 1989. Þá er skatturinn til frádráttar eignum við ákvörðun eignarskatts samkvæmt lögum nr. 75/1981, eftir reglum lokaákvæðis 1. mgr. 76. gr. þeirra laga.

9. gr.

     Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd laga þessara með reglugerð.

10. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi og skulu koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda á árinu 1989.

Samþykkt á Alþingi 21. desember 1988.