Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 492, 112. löggjafarþing 251. mál: bifreiðagjald (gjalddagi).
Lög nr. 125 28. desember 1989.

Lög um breyting á lögum nr. 39/1988, um bifreiðagjald.


1. gr.

     Við lögin komi ákvæði til bráðabirgða svohljóðandi:
     Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 3. gr. skal gjalddagi bifreiðagjalds, vegna gjaldtímabilsins 1. janúar til 30. júní 1990 vera 1. mars 1990.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 22. desember 1989.