[prenta uppsett í dálka]
Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.]
Þingskjal 279, 116. löggjafarþing 44. mál: Fiskistofa (eftirlit með framleiðslu sjávarafurða).
Lög nr. 92 20. nóvember 1992.
Lög um breyting á lögum nr. 36 27. maí 1992, um Fiskistofu.
1. gr. Aftan við 1. málsl. 2. gr. laganna kemur nýr málsliður er orðast svo: Þá skal Fiskistofa hafa með hendi eftirlit með meðferð fisks og framleiðslu sjávarafurða.
2. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1993.
Samþykkt á Alþingi 11. nóvember 1992.