[prenta uppsett í dálka]
Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.]
Þingskjal 1269, 116. löggjafarþing 455. mál: skipulagslög (skipulag miðhálendisins).
Lög nr. 73 19. maí 1993.
Lög um breytingu á skipulagslögum, nr. 19/1964, ásamt síðari breytingum.
1. gr. Við lögin bætist svofellt ákvæði til bráðabirgða:
Ráðherra getur, á sama hátt og kveðið er á um í 3. gr., ákveðið að samvinnunefnd verði skipuð til að gera tillögu að skipulagi á miðhálendi Íslands. Svæðið markast í aðalatriðum af línu sem dregin verður á milli heimalanda og afrétta. Héraðsnefndir þær, sem hlut eiga að máli, skipa hver um sig einn fulltrúa í samvinnunefnd en ráðherra skipar einn fulltrúa í nefndina og skal hann vera formaður. Um málsmeðferð tillögu að skipulagi miðhálendisins fer skv. 16. gr. skipulagslaga, nr. 19/1964. Að öðru leyti skal fresta frekari afgreiðslu tillögunnar uns ný skipulags- og byggingarlög hafa verið samþykkt á Alþingi.
2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á Alþingi 7. maí 1993.