Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 702, 118. löggjafarþing 251. mál: samsettir flutningar o.fl. vegna EES.
Lög nr. 33 28. febrúar 1995.

Lög um samsetta flutninga o.fl. vegna aðildar Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu.


1. gr.

     Tilgangur laga þessara er að fullnægja þeim skuldbindingum sem leiðir af ákvæðum 6. kafla III. hluta samnings um Evrópskt efnahagssvæði um flutningastarfsemi og XIII. viðauka við samninginn og eigi verður skipað í önnur lög.

2. gr.

     Samgönguráðherra er heimilt að setja reglugerðir að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga á grundvelli 1. gr.

3. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 20. febrúar 1995.