Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 289, 123. löggjafarþing 107. mál: hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Lög nr. 128 30. nóvember 1998.

Lög um heimild til hækkunar á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.


1. gr.

     Ríkisstjórninni er heimilt að semja um hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum úr 85,3 milljónum SDR í 117,7 milljónir SDR. Seðlabanki Íslands skal leggja fram það fé sem þarf til hækkunar kvótans, sbr. 23. gr. laga nr. 36/1986, um Seðlabanka Íslands.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 17. nóvember 1998.