Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 351, 125. löggjafarþing 235. mál: stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands (sala á 15% hlut).
Lög nr. 93 10. desember 1999.
Heimilt er að selja af hlutafé ríkissjóðs í Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf. 15% hlut í hvorum banka fyrir sig. Frekari sala á hlutafé í eigu ríkissjóðs í hlutafélagabönkunum er óheimil án samþykkis Alþingis.
Þingskjal 351, 125. löggjafarþing 235. mál: stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands (sala á 15% hlut).
Lög nr. 93 10. desember 1999.
Lög um breytingu á lögum nr. 50/1997, um stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands.
1. gr.
2. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:Heimilt er að selja af hlutafé ríkissjóðs í Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf. 15% hlut í hvorum banka fyrir sig. Frekari sala á hlutafé í eigu ríkissjóðs í hlutafélagabönkunum er óheimil án samþykkis Alþingis.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 10. desember 1999.