Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 539, 125. löggjafarþing 4. mál: skattfrelsi norrænna verðlauna.
Lög nr. 126 31. desember 1999.

Lög um skattfrelsi norrænna verðlauna.


1. gr.

     Eftirtalin norræn verðlaun skulu undanþegin tekjuskatti og útsvari:
  1. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs.
  2. Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs.
  3. Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs.
  4. Norrænu leikskáldaverðlaunin.
  5. Nóbelsverðlaunin.


2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts og útsvars á árinu 2000 vegna tekna á árinu 1999. Jafnframt falla úr gildi lög nr. 13/1976, um skattfrelsi bókmennta- og tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, með síðari breytingum.

Samþykkt á Alþingi 21. desember 1999.