Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.
Þingskjal 510, 126. löggjafarþing 301. mál: sjúklingatrygging (vísitala neysluverðs).
Lög nr. 176 21. desember 2000.
Lög um breytingu á lögum nr. 111/2000, um sjúklingatryggingu.
1. gr. Í stað orðsins „lánskjaravísitölu“ í 2. mgr. 5. gr. laganna kemur: vísitölu neysluverðs.
2. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2001.
Samþykkt á Alþingi 12. desember 2000.