Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 801, 128. löggjafarþing 457. mál: stofnun hlutafélags um Norðurorku.
Lög nr. 159 20. desember 2002.

Lög um stofnun hlutafélags um Norðurorku.


1. gr.

     Heimilt er Akureyrarbæ að stofna hlutafélag um rekstur Norðurorku, er nefnist Norðurorka hf.
     Ákvæði 2. mgr. 14. gr., 1. mgr. 20. gr. og 2. tölul. 1. mgr. 107. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög, gilda ekki um innborgun hlutafjár og fjölda hluthafa í Norðurorku hf. Ákvæði 6. og 7. gr. laga nr. 2/1995 eiga ekki við um greiðslu hlutafjár.

2. gr.

     Heimili Norðurorku hf. og varnarþing skulu vera á Akureyri, en heimilt skal vera að starfrækja útibú á öðrum stöðum.

3. gr.

     Tilgangur Norðurorku hf. er orkurannsóknir, vinnsla og framleiðsla raforku, varma og vatns og hvers konar annarra auðlinda, dreifing og sala afurða fyrirtækisins ásamt hverri þeirri starfsemi annarri sem nýtt getur rannsóknir, þekkingu eða búnað fyrirtækisins, sem og iðnþróun og nýsköpun af hverju tagi, ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni.
     Norðurorku hf. er heimilt að standa að stofnun og gerast eignaraðili að öðrum félögum og fyrirtækjum.
     Tilgangi félagsins og verkefnum skal nánar lýst í samþykktum þess. Samþykktum félagsins má breyta á hluthafafundum samkvæmt almennum reglum.

4. gr.

     Norðurorka hf. tekur við einkarétti Akureyrarbæjar og Norðurorku til starfrækslu hita- og rafveitu og yfirtekur skyldu Akureyrarbæjar til starfrækslu vatnsveitu á Akureyri. Norðurorka hf. yfirtekur samninga sem Norðurorka hefur gert um vatnssölu eða rekstur vatnsveitu í öðrum sveitarfélögum.
     Heimilt er öðrum sveitarfélögum að framselja Norðurorku hf. leyfi og réttindi til reksturs veitna og dreifikerfa sinna ef samningar takast um það.
     Aðrir sem reka orkumannvirki á starfssvæði Norðurorku hf. við gildistöku laga þessara skulu halda þeim rétti sínum.

5. gr.

     Stjórn Norðurorku hf. setur gjaldskrár um verð á seldri orku og vatni til notenda. Gjaldskrár fyrir sölu á rafmagni og heitu vatni öðlast eigi gildi fyrr en þær hafa verið staðfestar af iðnaðarráðherra og birtar í Stjórnartíðindum. Gætt skal almennra arðsemissjónarmiða við setningu gjaldskrár. Gjaldskrá vatnsveitu skal byggð á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 81/1991.

6. gr.

     Fastráðnir starfsmenn Norðurorku skulu eiga rétt á störfum hjá hinu nýja félagi og skulu þeim boðnar stöður hjá því, sambærilegar þeim er þeir áður gegndu, enda haldi þeir hjá félaginu réttindum sem þeir höfðu þegar áunnið sér.
     Um biðlaunarétt sem kann að hafa fylgt störfum hjá Norðurorku gilda ákvæði laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

7. gr.

     Stofna skal hlutafélagið Norðurorku á stofnfundi sem haldinn skal í desembermánuði 2002. Allur kostnaður af stofnun Norðurorku hf. og yfirtöku þess á rekstri Norðurorku greiðist af hlutafélaginu.

8. gr.

     Norðurorka hf. skal taka til starfa 1. janúar 2003 og yfirtaka allar eignir, réttindi, skuldir og skuldbindingar Norðurorku. Norðurorka skal lögð niður frá og með þeim degi og fellur þá jafnframt niður umboð stjórnar félagsins.

9. gr.

     Um skyldu Norðurorku hf. til greiðslu opinberra gjalda til ríkis og sveitarsjóða fer á sama hátt sem um skyldu fyrirtækja og stofnana sem sýslu- og sveitarfélög reka og bera ótakmarkaða ábyrgð á og hafa slíkan rekstur með höndum. Norðurorka hf. skal undanþegin stimpilgjöldum.
     Þá verða ekki greiddir skattar og opinber gjöld af eignatilfærslum milli Akureyrarbæjar og Norðurorku hf. við formbreytinguna.

10. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.
     Akureyrarbær ber áfram ábyrgð á lánum sem tekin hafa verið fyrir 31. desember 2002 með ábyrgð bæjarsjóðs vegna Norðurorku, Vatnsveitu Akureyrar, Rafveitu Akureyrar og Hita- og vatnsveitu Akureyrar.

Samþykkt á Alþingi 13. desember 2002.