Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1204, 128. löggjafarþing 543. mál: umhverfismengun af völdum einnota umbúða (hækkun umsýsluþóknunar).
Lög nr. 20 20. mars 2003.

Lög um breytingu á lögum nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, með síðari breytingum.


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 5. málsl. 1. mgr. 1. gr. laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „3,00 kr.“ kemur: 3,40 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „2,20 kr.“ kemur: 2,50 kr.
  3. Í stað fjárhæðarinnar „1,60 kr.“ kemur tvívegis: 1,80 kr.
  4. Í stað fjárhæðarinnar „0,32 kr.“ kemur: 0,36 kr.


2. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. maí 2003.

Samþykkt á Alþingi 10. mars 2003.