Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.
Þingskjal 648, 131. löggjafarþing 376. mál: Lífeyrissjóður sjómanna (afnám laganna).
Lög nr. 137 21. desember 2004.
Lög um afnám laga nr. 45/1999, um Lífeyrissjóð sjómanna, með síðari breytingum.
1. gr. Frá og með 1. janúar 2005 falla lög nr. 45/1999, um Lífeyrissjóð sjómanna, með síðari breytingum, úr gildi.
2. gr. Frá og með 1. janúar 2005 skal Lífeyrissjóður sjómanna starfa á grundvelli laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, og samþykkta er fyrir sjóðinn gilda. Stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna skal aðlaga samþykktir sjóðsins ákvæðum laga nr. 129/1997 og leggja þær þannig breyttar fyrir fjármálaráðherra til staðfestingar, sbr. 28. gr. laganna, svo fljótt sem auðið er.
3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á Alþingi 10. desember 2004.