Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 330, 136. löggjafarþing 232. mál: gjald af áfengi og tóbaki (hækkun áfengisgjalds og tóbaksgjalds).
Lög nr. 136 11. desember 2008.

Lög um breyting á lögum nr. 96/1995, um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum.


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 3. gr. laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „58,70 kr.“ í 1. tölul. kemur: 66,04 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „52,80 kr.“ í 2. tölul. kemur: 59,40 kr.
  3. Í stað fjárhæðarinnar „70,78 kr.“ í 3. tölul. kemur: 79,63 kr.


2. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 9. gr. laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „228,46 kr.“ í 1. tölul. kemur: 257,02 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „2,70 kr.“ í 2. tölul. kemur: 3,04 kr.
  3. Í stað fjárhæðarinnar „8,17 kr.“ í 3. tölul. kemur: 9,19 kr.


3. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 10. gr. laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „286,97 kr.“ í 1. tölul. kemur: 322,84 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „14,34 kr.“ í 2. tölul. kemur: 16,13 kr.


4. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 11. desember 2008.