Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.
Þingskjal 502, 138. löggjafarþing 321. mál: lyfjalög (gildistaka ákvæðis um smásölu).
Lög nr. 132 23. desember 2009.
Lög um breyting á lögum nr. 97/2008, um breytingu á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum.
1. gr. Síðari málsliður 13. gr. laganna, sbr. lög nr. 28/2009, orðast svo: Þó skal ákvæði 10. gr., hvað varðar smásöluaðila, taka gildi 1. janúar 2012.
2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á Alþingi 18. desember 2009.