Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 597, 138. löggjafarþing 336. mál: eignarhlutur ríkisins í Íslandsbanka hf., Arion banka hf. og NBI hf..
Lög nr. 138 29. desember 2009.

Lög um heimild til að staðfesta breytingar á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka hf., Arion banka hf. og NBI hf.


1. gr.

     Fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs Íslands er heimilt að staðfesta breytingar á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka hf., Arion banka hf. og NBI hf. við skilanefndir Glitnis banka hf., Kaupþings banka hf. og Landsbanka Íslands hf., allt í tengslum við samninga sem gerðir hafa verið um uppgjör vegna yfirtekinna eigna og skulda í kjölfar ákvarðana Fjármálaeftirlitsins frá í október 2008 á grundvelli laga nr. 125/2008.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 22. desember 2009.