Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.
Þingskjal 1253, 138. löggjafarþing 308. mál: heilbrigðisþjónusta (sveigjanleiki í starfsemi heilbrigðisstofnana).
Lög nr. 59 14. júní 2010.
Lög um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum.
1. gr. 2. mgr. 17. gr. laganna verður svohljóðandi:
Forstjórar og framkvæmdastjórnir heilbrigðisstofnana skulu hafa samráð við faglega yfirmenn í heilsugæslunni þegar sérmál hennar eru til ákvörðunar.
2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á Alþingi 9. júní 2010.