Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 735, 139. löggjafarþing 123. mál: viðauki við stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (aukning á dráttarréttindum nokkurra ríkja).
Lög nr. 5 28. janúar 2010.

Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til að staðfesta fyrir Íslands hönd breytingar á og viðauka við stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.


1. gr.

     Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd breytingar á og viðauka við stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) sem samþykktar voru af yfirstjórn sjóðsins 28. apríl og 5. maí 2008.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 25. janúar 2011.