Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.
Þingskjal 629, 140. löggjafarþing 364. mál: fjarskiptasjóður (framlenging líftíma o.fl.).
Lög nr. 179 23. desember 2011.
Lög um breytingu á lögum um fjarskiptasjóð, nr. 132/2005, með síðari breytingum (framlenging gildistíma o.fl.).
1. gr. 1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:
Ráðherra skipar þrjá menn í stjórn fjarskiptasjóðs, þar af formann og varaformann, auk varamanna. Skipunin gildir til þriggja ára í senn.
2. gr. 2. mgr. 5. gr. laganna orðast svo:
Ríkisendurskoðun annast árlega endurskoðun reikninga sjóðsins.
3. gr. Við 6. gr. laganna bætist ný málsgrein sem orðast svo:
Tekjur ríkissjóðs sem til eru komnar vegna gjalda fyrir afnot af tíðnum, sem lögð eru á samkvæmt heimild í lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, skulu renna í fjarskiptasjóð.
4. gr. Orðin „og allan kostnað Póst- og fjarskiptastofnunar af starfsemi sem tengist verkefnum sjóðsins“ í 7. gr. laganna falla brott.
5. gr. Síðari málsliður 9. gr. laganna orðast svo: Lög þessi falla úr gildi í árslok árið 2016, inneign sjóðsins eftir uppgjör verkefna við þau tímamót rennur í ríkissjóð.
6. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á Alþingi 17. desember 2011.