Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1272, 143. löggjafarþing 148. mál: Lánasjóður íslenskra námsmanna (úthlutunarreglur).
Lög nr. 73 28. maí 2014.

Lög um breytingu á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna, nr. 21/1992 (úthlutunarreglur).


1. gr.

     3. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:
     Stjórn sjóðsins setur nánari úthlutunarreglur um útfærslu á lögum þessum, þ.m.t. fjárhæð og úthlutun námslána, sem og ákvæði um kröfur um lágmarksnámsframvindu. Reglurnar skulu lagðar fram til kynningar og staðfestar af ráðherra eigi síðar en 1. apríl ár hvert.

2. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2015.

Samþykkt á Alþingi 16. maí 2014.