Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1275, 145. löggjafarþing 560. mál: útlendingar (kærunefnd, fjölgun nefndarmanna).
Lög nr. 38 24. maí 2016.

Lög um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 96 15. maí 2002, með síðari breytingum (kærunefnd, fjölgun nefndarmanna).


1. gr.

     3.–5. mgr. 3. gr. a laganna orðast svo:
     Ráðherra skipar sjö nefndarmenn í kærunefnd útlendingamála. Formaður nefndarinnar og varaformaður skulu skipaðir í fullt starf til fimm ára að undangenginni auglýsingu samkvæmt ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og að fenginni umsögn nefndar skv. 5. mgr. Þeir skulu uppfylla skilyrði um embættisgengi héraðsdómara. Um réttindi þeirra og skyldur fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Laun og starfskjör þeirra skulu ákveðin af kjararáði.
     Ráðherra skipar fimm aðra nefndarmenn og jafnmarga til vara til fimm ára í senn. Þeir skulu hafa lokið embættis- eða meistaraprófi í lögfræði. Tveir skulu tilnefndir af Mannréttindaskrifstofu Íslands, einn af Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og tveir skipaðir án tilnefningar. Þess skal gætt að innan nefndarinnar sé jafnan til staðar nauðsynleg sérþekking á þeim sviðum sem fjallað er um í nefndinni. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti og skulu uppfylla sömu hæfisskilyrði og aðalmenn. Ráðherra ákveður þóknun þeirra.
     Ráðherra skal skipa þrjá menn í nefnd sem meta skal hæfni umsækjenda um embætti formanns og varaformanns kærunefndar útlendingamála. Nefndin skal láta ráðherra í té skriflega rökstudda umsögn um umsækjendur.

2. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. b laganna:
  1. 1. og 2. mgr. orðast svo:
  2.      Að jafnaði skulu þrír nefndarmenn sitja fundi kærunefndar til að fjalla um hvert mál sem nefndinni berst. Formaður ákvarðar hvernig nefndin er skipuð í hverju máli og skal hann gæta þess að í nefndinni eigi sæti þeir sem besta þekkingu hafa til úrlausnar málsins. Formaður eða varaformaður á sæti í nefndinni í öllum málum. Varaformaður hefur sömu heimildir og formaður, sbr. 2. og 3. mgr., til að úrskurða í málum. Formanni er heimilt að ákveða að nefndin starfi deildaskipt.
         Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er nefndinni heimilt að fela formanni að úrskurða í þeim málum sem nefndin hefur til meðferðar og varða vegabréfsáritanir, ákvarðanir er varða málsmeðferð hjá Útlendingastofnun og frestun réttaráhrifa ákvarðana Útlendingastofnunar og kærunefndarinnar. Nefndinni er jafnframt heimilt að fela formanni að úrskurða einum í málum er varða umsókn um hæli ef:
    1. kærandi er ríkisborgari ríkis sem er á lista yfir örugg upprunaríki, sbr. 3. mgr. 50. gr. d,
    2. Útlendingastofnun hefur afgreitt málið á grundvelli b–e-liðar 1. mgr. 50. gr. d,
    3. Útlendingastofnun hefur ákveðið að réttaráhrifum skuli ekki frestað með vísan til c–d-liðar 1. mgr. 32. gr.

  3. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
  4.      Nefndinni er einnig heimilt að fela formanni að úrskurða einn í öðrum málum sem nefndin telur ekki viðamikil eða fordæmisgefandi. Þó skulu mál sem falla undir 2. mgr. og þessa málsgrein ákvörðuð í samræmi við 1. mgr. ef formaður telur að efnislegur vafi sé um niðurstöðu máls eða vafi sé á að málsatvik hafi verið rannsökuð á fullnægjandi hátt.
  5. 5. mgr. orðast svo:
  6.      Málsmeðferð skal að jafnaði vera skrifleg. Í málum skv. VII. kafla og 12. gr. f getur nefndin, telji hún ástæðu til, gefið kæranda kost á að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni máls eða einstök atriði þess eftir atvikum. Þá getur nefndin, telji hún ástæðu til, kallað til aðra en umsækjanda. Við undirbúning máls er formanni eða varaformanni heimilt að ákveða að kæranda sé gefinn kostur á að koma fyrir nefndina.


3. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 32. gr. laganna:
  1. Orðið „og“ í lok b-liðar 1. mgr. fellur brott.
  2. Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: í málum þar sem útlendingur kemur frá ríki á lista yfir örugg upprunaríki, sbr. 3. mgr. 50. gr. d, og skilyrði c-liðar eru uppfyllt.


4. gr.

     Á eftir orðinu „Lögregla“ í 1. málsl. 4. mgr. 50. gr. a laganna kemur: eða Útlendingastofnun.

5. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 50. gr. d laganna:
  1. Í stað orðanna „getur Útlendingastofnun“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: geta Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála.
  2. 2. mgr. fellur brott.
  3. Á eftir orðinu „Útlendingastofnun“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: og kærunefnd útlendingamála.
  4. Í stað 3. og 4. málsl. 3. mgr. koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Við mat á því hvort ríki teljist öruggt upprunaríki skal m.a. líta til þess hvort viðkomandi ríki búi við stöðugt stjórnarfyrirkomulag sem byggist á viðurkenndum meginreglum um réttarríki. Heimilt er að líta til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á því hvaða upprunaríki teljist örugg. Útlendingastofnun er skylt að halda utan um slíkan lista, uppfæra hann reglulega og birta á vef Útlendingastofnunar.


6. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi. Um mál sem borist hafa kærunefnd útlendingamála fyrir gildistöku laga þessara en hafa ekki verið afgreidd gilda ákvæði laganna.

Ákvæði til bráðabirgða.
      Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. skulu núverandi nefndarmenn halda skipun sinni sem nefndarmenn út skipunartímann. Ráðherra skipar við gildistöku laga þessara fjóra nefndarmenn til viðbótar samkvæmt ákvæði 1. gr., þ.m.t. varaformann nefndarinnar. Núverandi varaformaður heldur skipan sinni sem slíkur þar til nýr varaformaður hefur verið skipaður í samræmi við ákvæði 1. gr.

Samþykkt á Alþingi 12. maí 2016.