Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1806, 145. löggjafarþing 197. mál: almannatryggingar (barnalífeyrir).
Lög nr. 107 19. október 2016.

Lög um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum (barnalífeyrir).


1. gr.

     Við 4. mgr. 20. gr. laganna bætist: eða móður nýtur ekki við vegna sérstakra eða óvenjulegra aðstæðna.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 12. október 2016.