Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 289, 151. löggjafarþing 212. mál: tekjufallsstyrkir.
Lög nr. 118 10. nóvember 2020.

Lög um tekjufallsstyrki.


I. KAFLI
Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.
     Lög þessi gilda um einstaklinga og lögaðila sem stunda tekjuskattsskyldan atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, hófu starfsemina fyrir 1. apríl 2020 og bera ótakmarkaða skattskyldu hér á landi skv. 1. eða 2. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Lögin gilda ekki um stofnanir, byggðasamlög eða fyrirtæki í eigu ríkis eða sveitarfélaga.

2. gr.

Markmið.
     Markmið laga þessara er að viðhalda atvinnustigi og efnahagsumsvifum með því að styðja við rekstraraðila sem hafa orðið fyrir tímabundnu tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og aðgerða stjórnvalda til að verjast útbreiðslu hennar.

3. gr.

Orðskýringar.
     Í lögum þessum er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:
  1. Atvinnurekstur eða sjálfstæð starfsemi: Starfsemi aðila sem greiðir laun skv. 1. eða 2. tölul. 5. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, og er skráður á launagreiðendaskrá, eða gerði grein fyrir reiknuðu endurgjaldi í skattframtali 2020, svo og á virðisaukaskattsskrá þegar það á við.
  2. Launamaður: Launamaður skv. 1. eða 2. tölul. 4. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987.
  3. Rekstraraðili: Einstaklingur eða lögaðili sem fellur undir gildissvið laga þessara skv. 1. gr.
  4. Rekstrarkostnaður: Rekstrarkostnaður skv. 1. tölul. 31. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, að frátöldum niðurfærslum og fyrningum eigna.
  5. Stöðugildi: Starfshlutfall sem jafngildir fullu starfi launamanns í einn mánuð.
  6. Tekjur: Skattskyldar tekjur skv. B-lið 7. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, að frátöldum hagnaði af sölu varanlegra rekstrarfjármuna.


II. KAFLI
Tekjufallsstyrkur.

4. gr.

Skilyrði.
     Rekstraraðili sem uppfyllir öll eftirtalin skilyrði á rétt á tekjufallsstyrk úr ríkissjóði:
  1. Tekjur hans á tímabilinu 1. apríl til 31. október 2020 voru a.m.k. 40% lægri en meðaltekjur hans á sjö mánaða tímabili 2019 og tekjufallið má rekja til heimsfaraldurs kórónuveiru eða ráðstafana stjórnvalda til að verjast útbreiðslu hennar. Hafi hann hafið starfsemi eftir 1. apríl 2019 skulu tekjur hans bornar saman við tekjur hans fyrstu sjö heilu almanaksmánuði sem hann starfaði. Hafi hann starfað skemur en sjö heila almanaksmánuði í lok mars 2020 skal umreikna tekjur þann tíma sem hann starfaði til loka mars 2020 í 214 daga viðmiðunartekjur. Við sérstakar aðstæður má nota annað tímabil til viðmiðunar sýni rekstraraðili fram á að það gefi betri mynd af tekjufalli hans en viðmiðunartímabil skv. 1.–3. málsl. Hafi rekstraraðila verið ákvarðaður lokunarstyrkur skv. 1.–2. málsl. 1. tölul. 4. gr. laga nr. 38/2020 er heimilt að draga hann frá tekjum á því tímabili við útreikning tekjufalls samkvæmt þessu ákvæði að því marki sem hann hefur verið tekjufærður innan tímabilsins 1. apríl til 31. október.
  2. Hann er ekki í vanskilum með opinber gjöld, skatta og skattsektir sem komnar voru á eindaga fyrir lok árs 2019 og álagðir skattar og gjöld byggjast ekki á áætlunum vegna vanskila á skattframtölum og skýrslum, þ.m.t. staðgreiðsluskilagreinum og virðisaukaskattsskýrslum, til Skattsins síðastliðin þrjú ár áður en umsókn barst eða síðan hann hóf starfsemi ef það var síðar. Að auki skal hann, eftir því sem við á og á sama tímabili, hafa staðið skil á ársreikningum samkvæmt lögum um ársreikninga og upplýst um raunverulega eigendur samkvæmt lögum um skráningu raunverulegra eigenda.
  3. Hann hefur ekki verið tekinn til slita eða bú hans til gjaldþrotaskipta.


5. gr.

Fjárhæð.
     Fjárhæð tekjufallsstyrks skal vera jafnhá rekstrarkostnaði rekstraraðila á tímabilinu 1. apríl til 31. október 2020. Tekjufallsstyrkur getur þó aldrei numið hærri fjárhæð en sem nemur tekjufalli rekstraraðila skv. 1. tölul. 4. gr. Tekjufallsstyrkur fyrir hvern almanaksmánuð á tímabilinu 1. apríl til 31. október getur jafnframt aldrei orðið hærri en:
  1. 400 þús. kr. fyrir hvert mánaðarlegt stöðugildi hjá rekstraraðila á tímabilinu og ekki hærri en 2 millj. kr. enda sé tekjufall rekstraraðila skv. 1. tölul. 4. gr. á bilinu 40–70%.
  2. 500 þús. kr. fyrir hvert mánaðarlegt stöðugildi hjá rekstraraðila á tímabilinu og ekki hærri en 2,5 millj. kr. enda sé tekjufall rekstraraðila skv. 1. tölul. 4. gr. meira en 70%.

     Í stað þess að telja til rekstrarkostnaðar reiknað endurgjald fyrir tímabilið 1. apríl til 31. október 2020 er rekstraraðila heimilt að reikna til rekstrarkostnaðar á því tímabili fjárhæð sem nemur 7/ 12 af gjaldfærðu reiknuðu endurgjaldi í skattframtali 2020. Hafi rekstraraðili fengið atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. apríl til 31. október 2020 dragast þær frá þannig reiknuðum rekstrarkostnaði.
     Hafi rekstraraðili hlotið stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti samkvæmt lögum nr. 50/2020 á tímabilinu 1. apríl til 31. október 2020 skal hann draga fjárhæð þess stuðnings frá rekstrarkostnaði skv. 1. málsl. 1. mgr.
     Hafi rekstraraðila verið ákvarðaður lokunarstyrkur samkvæmt lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru dregst hann frá tekjufallsstyrk.
     Tekjufallsstyrkur telst til skattskyldra tekna samkvæmt lögum um tekjuskatt.

6. gr.

Umsókn.
     Umsókn um tekjufallsstyrk skal beint til Skattsins eigi síðar en 1. maí 2021. Umsókn skal vera rafræn en að öðru leyti á því formi sem Skatturinn ákveður.
     Rekstraraðili skal staðfesta við umsókn að hann uppfylli öll skilyrði 4. gr., að upplýsingar sem hann skilar og liggja til grundvallar ákvörðun fjárhæðar skv. 5. gr. séu réttar og að honum sé kunnugt um að það geti varðað álagi, sektum eða fangelsi að veita rangar eða ófullnægjandi upplýsingar.

7. gr.

Ákvörðun.
     Skatturinn skal afgreiða umsókn svo fljótt sem verða má og eigi síðar en tveimur mánuðum eftir að honum berst fullnægjandi umsókn.
     Við afgreiðslu umsóknar og endurskoðun ákvörðunar um tekjufallsstyrk getur Skatturinn farið fram á að rekstraraðili sýni með rökstuðningi og gögnum fram á rétt sinn til styrks.
     Skatturinn skal endurákvarða tekjufallsstyrk komi í ljós að rekstraraðili átti ekki rétt á styrknum eða átti rétt á hærri eða lægri styrk en honum var ákvarðaður.
     Að því leyti sem ekki er á annan veg kveðið á um í lögum þessum gilda ákvæði 94.– 97. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, eftir því sem við getur átt um afgreiðslu umsókna og endurákvarðanir Skattsins.

8. gr.

Málskot.
     Stjórnvaldsákvarðanir Skattsins samkvæmt lögum þessum sæta kæru til yfirskattanefndar. Um kærufrest og málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum laga um yfirskattanefnd.

9. gr.

Ofgreiðsla.
     Hafi rekstraraðili fengið tekjufallsstyrk umfram það sem hann átti rétt á ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var með vöxtum skv. 4. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá greiðsludegi. Dráttarvextir skv. 6. gr. sömu laga leggjast á kröfu um endurgreiðslu ef hún er ekki innt af hendi innan mánaðar frá dagsetningu endurákvörðunar Skattsins.
     Hafi rekstraraðili veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar um rekstrarkostnað eða upplýsingagjöf hans hefur að öðru leyti verið svo áfátt að áhrif hafi haft við ákvörðun um styrk skal Skatturinn gera honum að greiða 50% álag á kröfu um endurgreiðslu. Fella skal álagið niður ef rekstraraðili færir rök fyrir því að óviðráðanleg atvik hafi hamlað því að hann veitti réttar upplýsingar eða kæmi leiðréttingu á framfæri við Skattinn. Telji Skatturinn að háttsemi rekstraraðila geti varðað sektum eða fangelsi skal hann ekki gera honum að greiða álag heldur kæra málið til lögreglu.
     Ákvarðanir Skattsins og úrskurðir yfirskattanefndar um endurgreiðslur ofgreiddra tekjufallsstyrkja eru aðfararhæfir. Kæra til yfirskattanefndar eða málshöfðun fyrir dómstólum frestar aðför.

III. KAFLI
Ýmis ákvæði.

10. gr.

Hámarksstuðningur við tengda aðila.
     Heildarfjárhæð tekjufallsstyrkja til tengdra rekstraraðila getur að hámarki numið 120 millj. kr., að meðtöldum stuðningi samkvæmt lögum um ferðagjöf, nr. 54/2020, og lokunarstyrkjum fyrir lokunartímabil eftir 17. september 2020 samkvæmt lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020.
     Sé um að ræða fyrirtæki sem taldist í erfiðleikum 31. desember 2019, önnur en lítil fyrirtæki sem ekki hafa hlotið björgunar- eða endurskipulagningaraðstoð, getur heildarfjárhæð tekjufallsstyrkja til tengdra rekstraraðila þó að hámarki numið 30 millj. kr. Skal slík aðstoð samrýmast reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1407/2013 frá 18. desember 2013 um beitingu 107. og 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins gagnvart minniháttaraðstoð eins og hún var tekin upp í EES-samninginn.

11. gr.

Birting upplýsinga.
     Skatturinn skal birta opinberlega upplýsingar um hvaða lögaðilum hefur verið ákvarðaður tekjufallsstyrkur samkvæmt lögum þessum. Birta skal upplýsingar um alla styrkþega og fjárhæð styrkja nemi þeir jafnvirði 100 þúsund evra eða meira.

12. gr.

Viðurlög.
     Einstaklingur eða lögaðili sem brýtur af ásetningi eða stórfelldu gáleysi gegn lögum þessum, svo sem með því að veita rangar eða ófullnægjandi upplýsingar í umsókn um tekjufallsstyrk, skal sæta sektum eða fangelsi allt að sex árum nema brot megi teljast minni háttar.

13. gr.

Reglugerðarheimild.
     Ráðherra getur kveðið nánar á um framkvæmd laga þessara í reglugerð.

14. gr.

Gildistaka.
     Lög þessi öðlast þegar gildi.

15. gr.

Breyting á öðrum lögum.
     Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020: Á undan lokamálsgrein 5. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
     Hafi rekstraraðila verið ákvarðaður tekjufallsstyrkur samkvæmt lögum um tekjufallsstyrki dregst hann frá lokunarstyrk.

Ákvæði til bráðabirgða.
     Þrátt fyrir 4. og 5. gr. laga þessara er heimilt að veita rekstraraðila sem hóf störf á tímabilinu 1. apríl til 31. ágúst 2020 tekjufallsstyrk fyrir tímabilið 1. september til 31. október 2020 enda nemi tekjufall hans á því tímabili að lágmarki 40% miðað við tekjur hans frá því hann hóf starfsemi fram til 1. september 2020 umreiknaðar í 61 dags viðmiðunartekjur.
     Fjárhæð tekjufallsstyrks skv. 1. mgr. skal vera jafnhá rekstrarkostnaði rekstraraðila á tímabilinu 1. september til 31. október 2020. Tekjufallsstyrkur skv. 1. mgr. getur þó aldrei numið hærri fjárhæð en sem nemur tekjufalli samkvæmt ákvæðinu. Tekjufallsstyrkur fyrir hvorn mánuð um sig getur jafnframt aldrei orðið hærri en:
  1. 400 þús. kr. fyrir hvert mánaðarlegt stöðugildi hjá rekstraraðila á tímabilinu og ekki hærri en 2 millj. kr. enda sé tekjufall rekstraraðila skv. 1. mgr. á bilinu 40–70%.
  2. 500 þús. kr. fyrir hvert mánaðarlegt stöðugildi hjá rekstraraðila á tímabilinu og ekki hærri en 2,5 millj. kr. enda sé tekjufall rekstraraðila skv. 1. mgr. meira en 70%.

     Hafi rekstraraðila verið ákvarðaður lokunarstyrkur samkvæmt lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru á tímabilinu 1. september til 31. október 2020 er heimilt að draga hann frá tekjum á því tímabili við útreikning tekjufalls skv. 1. mgr. að því marki sem hann hefur verið tekjufærður innan tímabilsins.
     Hafi rekstraraðili hlotið stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti samkvæmt lögum nr. 50/2020 á tímabilinu 1. september til 31. október 2020 skal hann draga fjárhæð þess stuðnings frá rekstrarkostnaði skv. 1. mgr.

Samþykkt á Alþingi 5. nóvember 2020.