F. í Vestmannaeyjum 1. mars 1944. For.: Poul C. Kanélas, Detroit, Bandaríkjunum, og Ingibjörg Á. Johnsen (f. 1. júlí 1922, d. 21. júlí 2006) kaupkona. Hún átti síðar Bjarnhéðin Elíasson skipstjóra og útgerðarmann í Vestmannaeyjum. K. 1. (26. febr. 1966) Margrét Oddsdóttir (f. 28. sept. 1945) kennari. Þau skildu. For.: Oddur Sigurbergsson og k. h. Helga Einarsdóttir. K. 2. (13. des. 1970) Halldóra Filippusdóttir (f. 17. febr. 1941) flugfreyja. For.: Filippus Tómasson og k. h. Lilja Jónsdóttir. Dætur Árna og Margrétar: Helga Brá (1966), Þórunn Dögg (1968). Sonur Árna og Halldóru: Breki (1977).
Kennarapróf KÍ 1966.
Kennari í Vestmannaeyjum 1964-1965 og í Reykjavík 1966-1967. Starfsmaður Surtseyjarfélagsins með aðsetur í Surtsey sumar og haust 1966 og 1967. Blaðamaður við Morgunblaðið síðan 1967. Dagskrárgerðarmaður við Ríkisútvarpið og við Sjónvarpið frá stofnun þess.
Hefur unnið að margs konar félagsmálum í Vestmannaeyjum og víðar. Var formaður tóbaksvarnanefndar 1984-1988. Í stjórn Grænlandssjóðs 1987-2001, í flugráði 1987-2001, í Vestnorræna þingmannaráðinu 1991-2001, formaður þess um tíma. Í stjórn Norrænu stofnunarinnar á Grænlandi, NAPA, um árabil. Formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins 1988-2001 og formaður stjórnar Sjóminjasafns Íslands 1989-1992.
Alþm. Suðurl. 1983-1987, 1991-2001 og Suðurk. síðan 2007 (Sjálfstfl.).
Vþm. Suðurl. febr.-mars 1988, nóv. 1989, mars-apríl 1990, jan.-febr. 1991.
Fjárlaganefnd 1991-2001, samgöngunefnd 1991-2001 og 2007- (form. 1999-2001), menntamálanefnd 1991-2001, félagsmálanefnd 2007, félags- og tryggingamálanefnd 2007-2009.
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 1994-2001 og 2007- (form. 1996-2001).
Hefur skráð viðtalsbækur og bækur um gamanmál alþingismanna, skrifað hundruð greina í Morgunblaðið og önnur blöð, einnig samið svítu og sönglög og sungið og spilað eigin lög og annarra á hljómplötur.
Síðast breytt 18.05.2009. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur
Símanúmer
Á lögheimili: 481-1394
Á dvalarstað: 557-3333
Farsími: 894-1300
Aðrir símar: 854-1300