Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
1. þm. RS, S, ÁslS
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

   
Árni Steinar Jóhannsson

Árni Steinar Jóhannsson

Fæddur á Dalvík 12. júní 1953, dáinn 1. nóvember 2015. Foreldrar: Jóhann Helgason (fæddur 20. nóvember 1920, dáinn 9. apríl 1963) og kona hans Valrós Árnadóttir (fædd 3. ágúst 1927), móðursystir Sigríðar Önnu Þórðardóttur alþingismanns.

Gagnfræðapróf Dalvík 1969. Nám í Eau Claire Wisconsin U.S.A. Memorial High 1971, Garðyrkjuskóla ríkisins 1971-1974 og Landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn 1974-1979.

Garðyrkjustjóri á Akureyri 1979-1986. Umhverfisstjóri á Akureyri 1986-1999.

Stjórnarmaður Ferðamálamiðstöðvar Eyjafjarðar 1994-1998. Tók þátt í Evrópusamvinnunni Urban Forest and Trees 1997.

Alþingismaður Norðurlands eystra 1999-2003 (Vinstrihreyfingin - grænt framboð).

Varaþingmaður Norðurlands eystra nóvember 1996 (Alþýðubandalag), október-nóvember 1998 (þingflokkur óháðra), október-nóvember 2003 og október 2006 (Vinstrihreyfingin - grænt framboð).

4. varaforseti Alþingis 1999-2003.

Iðnaðarnefnd 1999-2003.



Síðast breytt 24.09.2019.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.