Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Ásthildur Lóa Þórsdóttir
3. þm. SU, Flf, ÁLÞ
Ásthildur Lóa Þórsdóttir

   
Ásta R. Jóhannesdóttir

Ásta R. Jóhannesdóttir

Fædd í Reykjavík 16. október 1949. Foreldrar: Jóhannes Bjarnason (fæddur 18. júlí 1920, dáinn 8. júní 1995) verkfræðingur, sonur Bjarna Ásgeirssonar alþingismanns og ráðherra, og Margrét Sigrún Ragnarsdóttir (fædd 7. nóvember 1924) húsmóðir. Maki: Einar Örn Stefánsson (fæddur 24. júlí 1949) framkvæmdastjóri. Foreldrar: Stefán Þórður Guðjohnsen og Guðrún Gréta Runólfsdóttir. Börn: Ragna Björt (1972), Ingvi Snær (1976).

Þýskunámskeið í Lindau í Þýskalandi 1967. Stúdentspróf MR 1969. Nám í félagsvísindum og ensku HÍ 1969-1973. Námskeið fyrir fararstjóra erlendis 1979. Ýmis stjórnunarnámskeið hjá Háskóla Íslands, Endurmenntunarstofnun og Iðntæknistofnun 1987, 1990 og 1993-1994.

Flugfreyja hjá Loftleiðum 1969-1972. Plötusnúður í Glaumbæ 1969-1971, auk þess í Tónabæ og Klúbbnum. Kennari við Gagnfræðaskólann á Hellu 1974-1976. Kennari við Fiskvinnsluskólann í Hafnarfirði 1976-1979. Starfsmaður barnaársnefndar menntamálaráðuneytisins á barnaári Sameinuðu þjóðanna 1979 og sá um útvarps- og sjónvarpsþætti um málefni barna það ár í tengslum við verkefni nefndarinnar. Dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu 1971-1990, umsjón með dægurmála-, tónlistar- og fréttatengdum þáttum bæði í útvarpi og sjónvarpi. Dagskrárgerðarmaður á Bylgjunni 1983. Fararstjóri fyrir Íslendinga erlendis 1980-1994. Deildarstjóri félagsmála- og upplýsingadeildar Tryggingastofnunar ríkisins 1990-1995. Félags- og tryggingamálaráðherra 1. febrúar 2009 til 10. maí 2009.

Í stjórn Landssambands framsóknarkvenna 1983-1989. Í stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur 1983-1994. Í miðstjórn Framsóknarflokksins 1984-1995 og framkvæmdastjórn (landsstjórn) flokksins 1986-1995. Í stjórn Friðarhreyfingar kvenna 1985-1988. Varamaður í yfirkjörstjórn Reykjavíkurborgar 1987-1991. Í útvarpsráði 1987-1995. Í starfshópi um endurskoðun íslenskrar heilbrigðislöggjafar 1988. Í nefnd um eflingu heimilisiðnaðar 1991-1993. Í undirbúningsnefnd fyrir alþjóðlegu kvennaráðstefnuna „Global Forum for Women“ í Dublin 1992. Í fulltrúaráði Sólheima 1993-1999. Í stjórn Heilsugæslustöðvar Vesturbæjar, Miðbæjar og Hlíðahverfis 1994-2003. Í stjórn Regnbogans, félags um Reykjavíkurlista, 1994-1996. Í nefnd um endurskoðun almannatryggingalaga 1995. Í nefnd um forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu 1995-1998. Sat í stýrihópi geðræktarverkefnis landlæknisembættisins, Geðhjálpar og Landspítala - háskólasjúkrahúss 2000-2003, í ráðgjafarhópi samgönguráðherra um stefnumótun í ferðamálum 2003-2004, í verkefnisstjórn um heilsufar kvenna á vegum heilbrigðisráðuneytisins 2001-2007. Formaður verkefnisstjórnar Straumhvarfa, átaksverkefnis fyrir geðfatlaða, á vegum félagsmálaráðuneytisins 2007-2009. Varaformaður nefndar á vegum heilbrigðisráðherra um greiðsluþátttöku almennings í heilbrigðiskerfinu 2007-2009 og átti sæti í framkvæmdanefnd hennar. Í stjórn kvennahreyfingar Samfylkingarinnar síðan 2007. Varaformaður nefndar þingmannasamtaka NATO um málefni Miðjarðarhafsríkja og Miðausturlanda 2008-2009.

Alþingismaður Reykvíkinga 1995-2003 (Þjóðvaki - hreyfing fólksins, þingflokkur jafnaðarmanna, Samfylkingin), alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2003-2013 (Samfylkingin).

Varaþingmaður Reykvíkinga febrúar-mars 1987, mars 1992 (Framsóknarflokkur).

Félags- og tryggingamálaráðherra 2009.

1. varaforseti Alþingis 2007-2009, forseti Alþingis 2009-2013.

Heilbrigðis- og trygginganefnd 1995-2003 og 2004-2007, samgöngunefnd 1995-1999 og 2003-2004, iðnaðarnefnd 1999-2000 og 2003-2005, félagsmálanefnd 2000-2003 og 2007, félags- og tryggingamálanefnd 2007-2009, umhverfisnefnd 2005-2007, kjörbréfanefnd 2007-2011, utanríkismálanefnd 2007-2009, þingskapanefnd 2011-2013.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 1995-1999, Íslandsdeild ÖSE-þingsins 1999-2003, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2003-2007, Íslandsdeild NATO-þingsins 2007-2009.


Hefur skrifað bókarkafla og fjölda greina um tryggingamál, ferðamál, heilbrigðismál og stjórnmál.

Ritstjóri: Í ritstjórn 19. júní (1985). Almannatryggingar, tímarit um velferðarmál (1994-1995). Í ritstjórn tímaritsins Sterkar saman (1998).


Síðast breytt 30.01.2015. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.