Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Einar K. Guðfinnsson
5. þm. NV, S, EKG
Einar K. Guðfinnsson

   
Eðvarð Sigurðsson

Eðvarð Sigurðsson (Eðvarð Kristinn)

      F. í Nýjabæ í Garði 18. júlí 1910, d. 9. júlí 1983. For.: Sigurður Eyjólfsson (f. 22. júní 1876, d. 15. mars 1921) sjómaður og k. h. Ingibjörg Sólveig Jónsdóttir (f. 27. júlí 1885, d. 8. maí 1966) húsmóðir.
      Vann ýmis verkamannastörf í Reykjavík til 1944, er hann gerðist starfsmaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og varð það ævistarf hans.
      Í stjórn Verkamannafélagsins Dagsbrúnar frá 1942, formaður 1961—1982. Formaður Verkamannasambands Íslands frá stofnun þess 1964—1975. Átti sæti í nefnd sem undirbjó lög um atvinnuleysistryggingar 1956. Í stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs frá stofnun hans 1956. Í verðlagsnefnd landbúnaðarvara (Sexmannanefnd) 1959—1971. Átti og sæti í nefndum, sem endurskoðuðu lög um slysatryggingar og atvinnuleysistryggingar. Fulltrúi Alþýðusambands Íslands á ársfundum Alþjóðavinnumálaskrifstofunnar í Genf 1955 og 1957. Kosinn 1967 í mþn. um staðgreiðslukerfi opinberra gjalda. Skip. 1973 í lífeyrissjóðanefnd.

      Landsk. alþm. (Reykv.) 1959—1971, alþm. Reykv. 1971—1979 (Alþb.).
      Vþm. Reykv. nóv. 1957. 2. varaforseti Sþ. 1971— 1974, 1. varaforseti Sþ. 1974, 2. varaforseti Nd. 1978— 1979.


Síðast breytt 27.06.2001. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.