Valdimar L. Friðriksson Fæddur á Akureyri 20. júlí 1960. Foreldrar: Friðrik Adolfsson (fæddur 23. nóvember 1924, dáinn 5. ágúst 2001) útvarps- og sjónvarpsvirki og kona hans Jenný Lind Valdimarsdóttir (fædd 9. ágúst 1932) framkvæmdastjóri prjónastofu. Maki (sambúð): Þóra H. Ólafsdóttir (fædd 16. október 1966) flugfreyja og framreiðslumaður. Foreldrar: Ólafur Þorsteinn Ólafsson og kona hans Margrét Sigurbjörg Halldórsdóttir. Börn Valdimars: Ólafur Daði (1982), Ása Björk (1988), Róbert Leó (1999). Stjúpsonur Valdimars, sonur Þóru: Ólafur Már (2001). Stúdentspróf Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi 1984. Próf í fiskeldisfræði frá Barony College Skotlandi 1986. Stundaði stjórnmálafræðinám við HÍ 1990-1992. Starfaði hjá Veiðimálastofnun 1986. Stöðvarstjóri Lindalax 1987-1989. Stuðningsfulltrúi á Barna- og unglingageðdeild 1991-1992. Framkvæmdastjóri Ungmennasambands Eyfirðinga 1993-1994. Framkvæmdastjóri Ungmennafélagsins Aftureldingar 1994-2005. Stuðningsfulltrúi á sambýli fyrir einhverfa. Formaður Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands 1980-1981. Formaður Handknattleiksfélags Akraness 1982-1983. Ritari JC Hafnarfirði 1988. Formaður Landssambands fiskeldisfræðinga 1988-1991. Í stjórn UMSK, Ungmennasambands Kjalarnesþings frá 1997, formaður frá 2000. Í stjórn SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu frá 2002, ritari frá 2004. Í tækninefnd Mosfellsbæjar frá 2002. Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2005-2007 (Samfylkingin, utan flokka, Frjálslyndi flokkurinn). Varaþingmaður Suðvesturkjördæmis nóvember-desember 2003, febrúar-apríl og nóvember-desember 2004, apríl-maí 2005 (Samfylkingin). Félagsmálanefnd 2005-2006, landbúnaðarnefnd 2005-2006. |