F. á Akranesi 23. júní 1949. For.: Ríkharður Jónsson (f. 12. nóv. 1929) málara- og dúklagningameistari, þjálfari og knattspyrnumaður og Hallbera Guðný Leósdóttir (f. 9. maí 1928) húsmóðir og skrifstofumaður hjá BÍ og VÍS, systir Bjarnfríðar Leósdóttur vþm. M. Daði Runólfsson (f. 30. nóv. 1945). For.: Runólfur Sæmundsson og Nanna Halldórsdóttir. Börn: Ríkharður (1972), Hekla Ingunn (1977).
Stúdentspróf MA 1969. Próf í uppeldis- og kennslufræði HÍ 1988. BA-próf í íslensku HÍ 1991. Framhaldsnám í menntunar- og uppeldisfræðum með áherslu á stjórnun KHÍ 2002.
Kennari við Gagnfræðaskólann í Mosfellsbæ 1983-1991, skólastjóri við sama skóla 1991-2000. Skólastjóri Hjallaskóla í Kópavogi 2001-2002. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar 2002-2007.
Bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ 2002-2007. Í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 2002-2007. Í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 2002-2007. Í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2002-2007. Í verkefnisstjórn um nýskipan lögreglumála 2003-2005. Í skólamálaráði Brunamálaskólans 2005-2007. Í stjórnarnefnd um málefni fatlaðra 2006-2007.
Alþm. Suðvest. síðan 2007 (Sjálfstæðisflokkur).
6. varaforseti Alþingis 2007-2009, 3. varaforseti Alþingis 2009, 1. varaforseti Alþingis 2009-2013. Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins síðan 2013.
Heilbrigðisnefnd 2007-2009, 2009-2010, 2010-2011, menntamálanefnd 2007-2011, félags- og tryggingamálanefnd 2009, þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2009-2010, allsherjar- og menntamálanefnd 2011-2012, velferðarnefnd 2012, fjárlaganefnd 2012-2013.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2007-2009, 2010-2011 og 2012-2013.
Síðast breytt 23.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur