Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Höskuldur Þórhallsson
3. þm. NA, F, HöskÞ
Höskuldur Þórhallsson

   
Héðinn Valdimarsson

Héðinn Valdimarsson

      F. í Reykjavík 26. maí 1892, d. 12. sept. 1948. For.: Valdimar Ásmundsson (f. 10. júlí 1852, d. 17. apríl 1902) ritstjóri þar og k. h. Bríet Bjarnhéðinsdóttir (f. 27. sept. 1856, d. 16. mars 1940) ritstjóri. K. 1. (30. júlí 1921) Marie Madelaine Leonie Callens (f. 29. júní 1898), frá Brussel. Þau skildu. K. 2. (21. ágúst 1926) Gyða Eggertsdóttir Briem (f. 12. maí 1908, d. 28. apríl 1983) húsmóðir. Þau skildu. For.: Eggert Eiríksson Briem, sonur Eiríks Briems alþm., og k. h. Katrín Pétursdóttir Thorsteinsson. K. 3. (15. sept. 1934) Guðrún Pálína Pálsdóttir (f. 15. nóv. 1909, d. 11. ágúst 2000) kennari. For.: Páll Bergsson og k. h. Svanhildur Jörundsdóttir. Dóttir Héðins og Gyðu: Katrín (1927). Dóttir Héðins og Guðrúnar: Bríet (1935).
      Stúdentspróf MR 1911. Hagfræðipróf Hafnarháskóla 1917.
      Skrifstofustjóri Landsverslunar 1917—1926. Meðal stofnenda Tóbaksverslunar Íslands hf. 1926 og var framkvæmdastjóri hennar til 1929. Stofnaði Olíuverslun Íslands hf. 1927 og var framkvæmdastjóri hennar til æviloka.
      Skip. í verðlagsnefnd 1920. Bæjarfulltrúi í Reykjavík 1922—1928. Formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar 1922—1924, 1927—1935, 1938—1940 og 1941. Í landsbankanefnd 1928—1931. Í bankaráði Landsbankans 1930—1934. Formaður Byggingarfélags alþýðu frá stofnun 1931. Í skipulagsnefnd atvinnumála 1935. Í samninganefnd við Ítali 1935 og við Breta 1936. Formaður fiskimálanefndar 1935—1937. Formaður Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins 1938—1939.

      Alþm. Reykv. 1926—1942 (Alþfl., Sósfl., Ufl.).


Síðast breytt 23.10.2009. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.