Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Jakob Frímann Magnússon
8. þm. NA, Flf, JFM
Jakob Frímann Magnússon

   
Ingvar Gíslason

Ingvar Gíslason

Fæddur í Nesi í Norðfirði 28. mars 1926, dáinn 17. ágúst 2022. Foreldrar: Gísli Hjálmarsson Kristjánsson (fæddur 12. desember 1893, dáinn 6. júlí 1989) útgerðarmaður og kona hans Fanný Kristín Ingvarsdóttir (fædd 17. desember 1904) húsmóðir, dóttir Ingvars Pálmasonar alþingismanns. Maki (21. maí 1949): Ólöf Auður Erlingsdóttir (fædd 1. mars 1928, dáin 27. júní 2005). Foreldrar: Erlingur Pálsson og kona hans Sigríður Sigurðardóttir. Börn: Fanný (1949), Erlingur Páll (1952), Gísli (1956), Sigríður (1960), Auður Inga (1965).

Stúdentspróf MA 1947. Stundaði nám í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands 1947—1948 og í sagnfræði við háskólann í Leeds í Englandi 1948—1949. Lögfræðipróf HÍ 1956. Hdl. 1962.

Blaðamennska og ýmis störf í Reykjavík lengst af með námi 1949—1956. Fulltrúi í fjármálaráðuneyti 1956—1957. Skrifstofustjóri Framsóknarflokksins á Akureyri 1957—1963, en stundaði jafnframt ýmis lögfræðistörf. Stundakennari við Gagnfræðaskólann á Akureyri 1958—1959. Dómarafulltrúi á Akureyri flest sumur 1963—1969. Skipaður 8. febrúar 1980 menntamálaráðherra, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí. Ritstjóri Tímans 1987—1991.

Í stjórn Atvinnubótasjóðs, síðar Atvinnujöfnunarsjóðs, 1963—1971. Kosinn í áfengismálanefnd 1964 og var framkvæmdastjóri hennar 1965—1966. Skipaður 1966 í nefnd til að semja frumvarp um almennan lífeyrissjóð. Sat fund Þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna 1970. Skipaður 1971 í nefnd til að semja frumvarp um jöfnun námsaðstöðu. Átti sæti í Rannsóknaráði 1971—1980, þar af í stjórn ráðsins 1971—1979. Í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins 1972—1980. Kosinn í byggðanefnd 1973. Sat í húsafriðunarnefnd 1974—1983. Átti sæti í Kröflunefnd 1974—1980. Fulltrúi á þingi Evrópuráðsins 1971—1980 og 1983—1987 og sat nokkur ár í forsætisnefnd þess. Á sæti í útvarpsréttarnefnd síðan 1986 og í stjórn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands síðan 1986. Í úthlutunarnefnd starfslauna rithöfunda 1994—1995.

Alþingismaður Norðurlands eystra 1961—1987 (Framsóknarflokkur).

Varaþingmaður Norðurlands eystra apríl—júní 1960 og janúar— mars 1961.

Menntamálaráðherra 1980—1983.

Forseti neðri deildar 1978—1979 og 1983—1987. 1. varaforseti neðri deildar 1974, 2. varaforseti neðri deildar 1974—1978.

Formaður þingflokks Framsóknarflokksins 1979—1980.


Hefur ritað blaða- og tímaritsgreinar og birt nokkur ljóð, hlaut verðlaun í ljóðasamkeppni á vegum menningarmálanefndar Akureyrar 1989.

Ritstjóri: Muninn (1946—1947). Allt til skemmtunar og fróðleiks (1950—1951). Stúdentablað 1. des. 1951, formaður ritnefndar (1951). Vikutíðindi (1951). Tíminn (1987—1991).


Síðast breytt 19.09.2022.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.