F. í Reykjavík 29. maí 1968. For.: Ingi R. Jóhannsson (f. 5. des. 1936, d. 30.10.2010) skákmeistari og löggiltur endurskoðandi og Sigþrúður Steffensen (f. 14. febr. 1930) húsmóðir og bankastarfsmaður. M. Birgir Hermannsson (f. 18. ágúst 1963) háskólakennari. For.: Hermann G. Jónsson og Magdalena S. Ingimundardóttir. Börn: Jakob (1998), Hanna Sigþrúður (2004), Davíð (2006). Sonur Sigríðar og Arnars G. Hjálmtýssonar: Natan (1991).
Stúdentspróf MR 1987. BA-próf í sagnfræði HÍ 1992. Meistarapróf í viðskipta- og hagfræði frá Uppsalaháskóla 2002.
Verkefnisstjóri hjá Norræna félaginu 1994-1996. Sérfræðingur á þjóðhagsreikningasviði Hagstofu Íslands 2002-2005. Sérfræðingur á hagdeild ASÍ 2005-2007. Sérfræðingur á velferðarsviði félags- og tryggingamálaráðuneytis 2007-2009. Formaður framkvæmdastjórnar Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna 2008-2009.
Í framkvæmdanefnd Reykjavíkuranga Kvennalistans 1994-1996. Fulltrúi Kvennalistans í nefnd um endurskoðun kosningalaga 1994-1995. Varaformaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík 2007-2009. Í bankaráði Seðlabanka Íslands 2007-2008. Formaður nefndar um húsnæðismál á vegum félags- og tryggingamálaráðherra 2007-2009. Í stjórn Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalags Íslands, 2008-2009.
Alþm. Reykv. s. síðan 2009 (Samfylkingin).
3. varaforseti Alþingis 2010. Efnahags- og skattanefnd 2009-2011, félags- og tryggingamálanefnd 2009-2011(form. 2010-2011), sérnefnd um stjórnarskrármál 2010-2011, umhverfisnefnd 2010, heilbrigðisnefnd 2010-2011, fjárlaganefnd 2011-2012 (form.), stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2012-2013, velferðarnefnd 2012-2013 (form.).
Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2009-2011 og 2012-2013.
Síðast breytt 23.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur