F. í Reykjavík 30. júní 1948. For.: Sigmundur Jónsson (f. 11. okt. 1911) fjármálastjóri og k. h. Nanna Gunnlaugsdóttir (f. 8. júní 1911) fótaaðgerðafræðingur. K. (25. ágúst 1973) Sigríður Guðbjörg Sigurbjörnsdóttir (f. 5. okt. 1948) skrifstofustjóri. For.: Sigurbjörn Þórðarson og k. h. Heiðveig Hálfdánardóttir. Börn: Sigmundur Davíð (1975), Sigurbjörn Magnús (1977), Nanna Margrét (1978).
Stúdentspróf MR 1970. Viðskiptafræðipróf HÍ 1974. Námskeið á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington 1976.
Starfsmaður fjármálaráðuneytis 1974-1982. Starfsmaður Alþjóðabankans í Washington 1982-1984. Forstjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins 1985. Forstjóri Þróunarfélags Íslands hf. 1986-1993. Forstjóri Kögunar hf. 1993-2006. Stjórnarformaður HLAÐBÆR-COLAS hf. Framkvæmdastjóri Máttar ehf. síðan 2006.
Í þingmannanefnd EFTA/EES 1995 og fulltrúi í Þingmannasamtökum Norður-Atlantshafsríkjanna 1995. Hefur setið í fjölmörgum öðrum opinberum nefndum og stjórnum fyrirtækja bæði hérlendis og erlendis.
Alþm. Vestf. 1995-1999 (Framsfl.).
Hefur ritað fjölmargar greinar um viðskipti, fjármál og stjórnmál.
Síðast breytt 05.01.2007. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur