Gunnar Birgisson Fæddur í Reykjavík 30. september 1947, dáinn 14. júní 2021. Foreldrar: Birgir Guðmundsson (fæddur 19. maí 1922, dáinn 17. febrúar 1962) matsveinn og Auðbjörg Brynjólfsdóttir (fædd 1. nóvember 1929, dáin 17. janúar 2000) starfsmaður heimilishjálpar í Reykjavík, móðir Kristins H. Gunnarssonar alþingismanns. Maki (29. desember 1973): Vigdís Karlsdóttir (fædd 27. maí 1948) sjúkraliði. Foreldrar: Karl Þorláksson og kona hans Brynhildur Eysteinsdóttir. Dætur: Brynhildur (1968) og Auðbjörg Agnes (1976). Stúdentspróf MR 1972. Próf í verkfræði frá HÍ 1977. M.Sc.-próf í byggingaverkfræði frá Heriot-Watt University í Edinborg 1978. Doktorspróf í jarðvegsverkfræði frá University of Missouri 1983. Verkfræðingur hjá Norðurverki 1977 og Hönnun hf. 1979-1980. Verkfræðingur og framkvæmdastjóri Gunnars og Guðmundar hf. 1980-1994 og Klæðningar ehf. síðan 1986. Bæjarstjóri Kópavogs 2005-2009, bæjarstjóri Fjallabyggðar 2015-2019 og sveitarstjóri Skaftárhrepps 2020. Varaformaður Verktakasambands Íslands 1985-1986 og formaður þess 1986-1991. Í framkvæmdastjórn VSÍ 1985-1992, varaformaður VSÍ 1989-1992. Oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi frá 1990. Formaður bæjarráðs Kópavogs frá 1990. Formaður stjórnar LÍN 1991-2009. Alþingismaður Reyknesinga 1999-2003, alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2003-2006 (Sjálfstæðisflokkur). Varaþingmaður Reyknesinga október 1992. Efnahags- og viðskiptanefnd 1999-2005, umhverfisnefnd 1999-2005, menntamálanefnd 2002-2005 (formaður). Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2003-2005 (form.). |