20.9.2004

Heimsókn forsætisnefndar danska þingsins 21.-23. september 2004

Hluti forsætisnefndar danska þingsins verður í vinnuheimsókn hér á landi dagana 21.-23. september í boði forseta Alþingis.
 
Í heimsókninni mun forsætisnefndin ræða við forsætisnefnd Alþingis og fulltrúa þingflokka. Enn fremur mun forsætisnefnd danska þingsins eiga fundi með forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni og Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra.
 
Sendinefndin mun hitta fulltrúa skrifstofu Alþingis þar sem fjallað verður um starfsemi og skipulag Alþingis. Jafnframt mun hún skoða handritasýninguna í Þjóðmenningarhúsinu og heimsækja Þingvelli.
 
Nánari upplýsingar um fundina fást hjá alþjóðasviði Alþingis í síma 563 0750 og almannatengsladeild í síma 563 0621.