23.8.2012

Fundur evrópskra kvenþingforseta í Vínarborg

Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sækir fund evrópskra kvenþingforseta í Vínarborg 24.-25. ágúst 2012, í boði Barböru Prammer, forseta austurríska þingsins.
 
Til fundarins er boðið öllum kvenþingforsetum aðildarríkja Evrópusambandsins, auk umsóknarríkja. Aðalumræðuefni fundar er staða efnahagsmála í Evrópu og kynjuð hagstjórn.