18.3.2014

Þing Alþjóðaþingmannasambandsins í Genf

130. þing Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) er haldið í Genf dagana 16.-20. mars 2014.Helstu umræðuefni þingsins verða hlutverk þjóðþinga við að stuðla að heimi án kjarnorkuvopna, hlutverk þjóðþinga við vernd réttinda barna og málefni Sameinuðu þjóðanna með áherslu á þúsaldarmarkmiðin. Jafnframt fer fram sérstök umræða um ástandið í Sýrlandi.

Þingið sækja fyrir hönd Alþingis Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður Íslandsdeildar, Ásmundur Einar Daðason og Birgitta Jónsdóttir.