17.11.2014

Fundir þingmannanefndar EFTA í Genf og Brussel

Þingmannanefnd og ráðherraráð EFTA koma saman til fundar í Genf 17. nóvember 2014. Helsta dagskrárefni fundarins er gerð fríverslunarsamninga EFTA.


Þingmannanefnd EFTA mun enn fremur fjalla um stöðu fríverslunarmála hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni og yfirstandandi fríverslunarviðræður ESB og Bandaríkjanna. 

Þá mun þingmannanefnd EFTA hitta fulltrúa nefndar Evrópuþingsins gagnvart EES/EFTA-ríkjunum í Brussel og fjalla m.a. um framkvæmd EES-samningsins. Loks mun þingmannanefndin eiga fund með utanríkisráðherrum EES/EFTA-ríkjanna.

Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sækja fundina Guðlaugur Þór Þórðarson formaður, Katrín Jakobsdóttir, Katrín Júlíusdóttir, Vilhjálmur Bjarnason og Willum Þór Þórsson.