19.11.2014

Forseti Alþingis í vinnuheimsókn í Washington D.C.

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, verður í vinnuheimsókn í Washington D.C. dagana 19.-21. nóvember 2014. Hann mun meðal annars eiga fundi með öldungadeildar­þingmönnunum Bob Corker frá Tennessee, Angus King frá Maine og Lisu Murkowski frá Alaska. Forseti Alþingis fundar einnig með þingmanninum Dana Rohrabacher, frá Kaliforníu, sem er formaður fulltrúadeildar­nefndar um málefni Evrópu.


Forseti Alþingis mun jafnframt hitta að máli fulltrúa frá National Oceanic and Atmospheric Administration (NOAA) og National Fisheries Institute (NFI). Þá hefur Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, þegið boð Heritage-hugveitunnar um að vera aðalræðumaður á hádegisverðarfundi og gera grein fyrir málefnum norðurslóða og tækifærum á samvinnu Íslands og Bandaríkjanna sem gegna formennsku í Norðurskautsráðinu á næsta ári.