Vinnuheimsókn forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja til Úkraínu
Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, sótti Úkraínu heim ásamt öðrum forsetum þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja 1.–2. febrúar 2016. Þingforsetarnir áttu fundi með Volodymyr Groysman, forseta úkraínska þingsins, fulltrúum úkarínskra þingflokka, Arseniy Yatsenyuk forsætisráðherra og Petro Poroshenko, forseta Úkraínu.
Einnig áttu þingforsetarnir fundi með sérstökum fulltrúa um málefni Krímskaga og þingmanni þjóðarbrots Tatara á Krímskaga.
Þá hittu forsetar þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja að máli ríkissaksóknara Úkraínu og sérstakan saksóknara í spillingarmálum, ásamt því að heimsækja miðstöð gegn spillingu og eiga fundi með fulltrúum frjálsra félagasamtaka og mannúðarsamtaka.