19.4.2017

Hátíð Jóns Sigurðssonar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn 20. apríl

Hátíð Jóns Sigurðssonar verður haldin í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á sumardaginn fyrsta, 20. apríl 2017, kl. 16.30. Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta verða afhent af því tilefni. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á loft verkum hans og hugsjónum.

Alþingi veitir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þau verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála. Nánari upplýsingar um  dagskrá hátíðarinnar er að finna á vef Jónshúss