Fundur vestnorrænna þingforseta
Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, sótti fund vestnorrænna þingforseta í Nuuk á Grænlandi 12.–13. júní 2017 í boði Lars-Emil Johansen, forseta grænlenska þingsins. Auk þeirra sótti Páll á Reynatúgvu, forseti færeyska Lögþingsins, fundinn. Á dagskrá fundar var samstarf landanna þriggja, einkum þingmannasamstarf.
Gerðu þingforsetarnir grein fyrir þeim málum sem hæst hafa borið í þjóðþingum landanna þriggja og ræddu nýja stöðu í vestnorrænu samstarfi í kjölfar þess að Vestnorræna ráðið hlaut áheyrnaraðild að Norðurheimskautsráðinu.
Unnur Brá lagði áherslu á mikilvægi málefna norðurskautsins og aukna athygli sem norðurslóðir hljóta um allan heim, ekki síst vegna baráttu gegn loftslagsbreytingum og aukinna möguleika á vinnslu auðlinda á norðurslóðum. Lagði hún sérstaka áherslu á að þingmenn frá Færeyjum, Íslandi og Grænlandi beittu sér með virkum hætti með þátttöku í svæðibundnu þingmannasamstarfi og Hringborði norðurslóða (Arctic Circle) til að raddir íbúa norðurslóða ættu sér öfluga málsvara sem gættu hagsmuna náttúru og frumbyggja.
Páll á Reynatúgvu, forseti færeyska Lögþingsins, Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis og Lars-Emil Johansen, forseti grænlenska þingsins.