Forseti Alþingis hittir framkvæmdastjóra Loftslagsstofnunar Sameinuðu þjóðanna
Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, átti í dag fund með Patriciu Espinosa, framkvæmdastjóra Loftslagsstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Ræddu þær hlutverk kjörinna fulltrúa og þjóðþinga í baráttunni við loftslagsbreytingar en Alþingi samþykkti samhljóða fullgildingu Parísarsáttmálans á síðasta ári. Þá ræddu þær jafnréttismál og hlutverk kvenna í baráttunni við umhverfisvár og loftslagsbreytingar. Sagði Espinosa Ísland geta lagt mikið af mörkum með þekkingu á umhverfismálum og jafnréttismálum.