12.10.2015

Fundur þingforseta smáríkja Evrópu í Mónakó

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, sækir árlegan fund forseta þjóðþinga evrópskra smáríkja sem haldinn er í Mónakó 13.–14. október 2015.

Fundurinn er árlegur samráðsvettvangur þjóðþinga evrópskra smáríkja, með íbúafjölda undir einni milljón, sem eru aðilar að Evrópuráðinu. Að þessum vettvangi þjóðþinga eiga aðild, auk Alþingis, þjóðþing Andorra, Kýpur, Liechtenstein, Lúxemborgar, Möltu, Mónakó, San Marínó og Svartfjallalands.

Yfirlit yfir þátttöku Alþingis í alþjóðastarfi.