25.5.2012

Vorfundir NATO-þingsins 25.-28. maí

NATO-þingið kemur saman til vorfunda í Tallinn 25.–28. maí 2012. Þar verða tekin til umræðu málefni sem eru ofarlega á baugi innan Atlantshafsbandalagsins, t.d. aðgerðir NATO í Afganistan og ástandið í Norður-Afríku og Miðausturlöndum. Einnig verður rætt um niðurstöður leiðtogafundar NATO sem haldinn var í Chicago 21.-22. maí síðastliðnum.

Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður og Birgitta Jónsdóttir.